FIMLEIKADEILD GRÓTTU
Skráning í fimleikadeild Gróttu
Opnað hefur verið fyrir forskráningu í Fimleikadeild Gróttu fyrir veturinn 2026-2027.
Þann 1. júní til 31. júlí fer fram forskráning í Fimleikadeild Gróttu fyrir veturinn 2026-2027. Við skráningu er greitt 15.000 kr. skráningargjald með kreditkorti.
Skráningargjaldið er óafturkræft en dregst frá æfingagjöldum næsta vetrar.
Við hvetjum ykkur til að forskrá iðkendur sem fyrst, þar sem það bæði hjálpar okkur að skipleggja vetrarstarfið tímanlega og pláss í hópunum er takmarkað. Athugið að núverandi biðlistar falla úr gildi og allir sem vilja tryggja sér pláss næsta vetur þurfa að forskrá sig. Að lokinni forskráningu verður hægt að skrá sig á biðlista.
Forskráning í grunnhópa fyrir KK og KVK iðkendur fædda 2019-2021
Forskráning í áhaldafimleika fyrir KVK iðkendur fædda 2018 og fyrr.
Forskráning í hópfimleika fyrir KK og KVK iðkendur fædda 2018 og fyrr.
