Í dag var haldið skemmtilegt fjölskyldufjör í fimleikasal Gróttu þar sem um 130 börn mættu ásamt foreldrum sínum til að fagna Sumardeginum fyrsta með okkur.
Stemningin var frábær og nóg um að vera fyrir alla aldurshópa. Boðið var upp á andlitsmálningu, hægt var að lita myndir og næla sér í popp og kandífloss. Þá var einnig líf og fjör á Gróttumarkaðinum þar sem margt fallegt var til sölu.
Það var einstaklega ánægjulegt að sjá hversu margir sáu sér fært að koma og deila þessum fallega degi með okkur.
Við þökkum kærlega fyrir komuna 💙💛

