Skip to content

Handboltanámskeið Gróttu 2020

Handknattleiksdeild Gróttu verður, líkt og síðustu ár með öflugt sumarstarf fyrir börn og unglinga.

Í sumar verður boðið upp á handboltaaskóla í þrjár vikur, þ.e. frá 6. – 21. ágúst. Í handboltaskólanum, sem er fyrir börn fædd 2009-2014, verður börnum skipt eftir aldri til að koma til móts við þarfir hvers og eins. Farið verður í grunnatriði fyrir yngsta aldurshópinn og flóknari æfingar fyrir eldri hópa.

Vandað verður til verka við val á þjálfurum og leiðbeinendum við skólann, líkt og undanfarin ár. Meðal þeirra sem koma að þjálfuninni eru leikmenn og þjálfarar handknattleiksdeildar. Umsjónarmaður námskeiðsins er Hákon Bridde, yfirþjálfari handknattleiksdeildar. Byrjendur eru sérstaklega velkomnir á þessi námskeið.

Skólinn verður alla daga frá kl. 09:00 – 12:00, en boðið verður upp á gæslu frá kl. 08:00 og að skóla loknum til kl. 13:00.

Handboltaskólanum lýkur með grillveislu fyrir alla þátttakendur föstudaginn 21. ágúst.

Verð:

  • Vika 1 – 5.200kr (4. – 7. ágúst)
  • Vika 2 – 6.500kr (10. – 14. ágúst)
  • Vika 3 – 6.500kr (17. – 21. ágúst)
  • Ef allar vikur eru teknar kostar það 16.000 kr

Innritun fer fram í gegnum rafrænt skráningakerfi Gróttu, Nóra grotta.felog.is

 

Upplýsingar fást einnig á skrifstofu Gróttu í síma 561-1133 á milli kl 13:00 og 16:00 eða með því að senda tölvupóst á netfangið gullijons@grotta.is eða jonap@seltjarnarnes.islaufeyg@seltjarnarnes.is

Handknattleiksdeild Gróttu verður einnig með sérstakan afreksskóla en hann er starfræktur frá, 4. – 21. ágúst fyrir iðkendur sem verða í 5. og 4.flokki næsta vetur (f. 2005-2008).

Æfingar fara fram  mánudaga – fimmtudaga  kl. 12:30 – 14:00. Í afreksskólanum verður að miklu leyti farið í flóknari tækniatriði en í handboltaskólanum og meiri afrekshugsun í fyrirrúmi.

Verð:

  • Vika 1 – 3.750kr (4.- 6. ágúst)
  • Vika 2 – 5.000kr (10.-13. ágúst)
  • Vika 3 – 5.000kr (17.- 20. ágúst)
  • Ef allar vikurnar eru teknar þá kostar það 11.500kr

Afreksskólanum lýkur með grillveislu fyrir alla þátttakendur fimmtudaginn 20.ágúst.

Hægt er að deila fréttinni, senda með tölvupósti og/eða prenta út hér fyrir neðan.

Facebook
Twitter
Email
Print