Þrjár Gróttustelpur hafa verið valdar til að taka þátt í Hæfileikamótun N1 og KSÍ sunnudaginn 17. nóvember. Það eru þær Jóna Guðrún Gylfadóttir, Þorbjörg Lilja Guðmundsdóttir og Rut Heiðarsdóttir.
Stelpurnar eru allar í 4. flokki, Jóna á yngra ári en Þorbjörg og Rut á eldra ári.
Innilega til hamingju og gangi ykkur vel!